One tour per person

UPPLIFÐU FEGURÐ FLJÓTSHLÍÐAR!

Keyrt er um Fljótshlíðina og stoppað á áhugaverðum stöðum með leiðsögumanni sem er heimamaður og getur sagt frá öllum helstu sögum svæðisins. Staðir sem verða skoðaðir eru t.d. Stóra Dímon, Gluggafoss, Þórólfsgjúfur og Fell. Við munum svo enda á göngu inn í Tumastaðarskóg þar sem við grillum brauð yfir eldi að skátasið. Þaðan förum við á Midgard Base Camp þar sem hópurinn skellir sér í bjórjóga. Þegar búið er að mýkja stirða vöðva gæðum við okkur á hamborgara og bjór/gos.

Innifalið:

  • Leiðsögn um Fljóthlíðina í rútu
  • Brauð í Tumastaðaskógi
  • Bjórjóga
  • Hamborgari og bjór/gos

Hvar:

Hópurinn hittist á Midgard Base Camp, Hvolsvelli kl. 11. Sjá staðsetningu á Goggle Maps hér.

Hvenær:

Dagsetningar koma fram í bókunarferlinu. Ertu með aðra dagsetningu í huga? Sendu okkur endilega póst á adventure@midgard.is.

Tímalengd:

5-6 tímar

Lágmarksþátttaka:

8 í hverri ferð. Ef lágmarksþátttaka næst ekki munum við hafa samband við þá sem eru skráðir.

Erfiðleikastig:

Auðvelt. Tilvalið fyrir þá sem kjósa minni útiveru. Bjórjógað er mjög auðvelt. Meira er gert úr glensi og skemmtun.

Útbúnaður:

Hlý föt og gönguskór. Gott að vera í lögum þannig hægt sé að klæða sig úr og í. Gott að vera með lítinn bakpoka.

Nesti:

Gestir koma með eigið nesti eða panta nesti frá Midgard (2.500 kr.). Sjá nánari upplýsingar neðar.

Hvernig bóka ég?

Þú bókar hér á síðunni. Til að virkja gjafabréfið slærð þú inn ADVANIA2020 undir „Promo Code or Gift Card“ og setur inn númer gjafabréfs undir „Questions“.

 

BÓKAÐU Í DAG OG UPPLIFÐU LEYNDARMÁL FLJÓTSHLÍÐAR MEÐ MIDGARD ADVENTURE!

Hafðu samband!

Ertu með spurningu? Sendu okkur póst á adventure@midgard.is og við svörum um hæl. Þú getur einnig hringt í okkur í síma 578 3370.

 

Nánari upplýsingar og algengar spurningar

Nestisbox frá Midgard Restaurant

Þegar þú bókar ferðina stendur þér til boða að bóka nestisbox frá Midgard Restaurant. Hvert nestisbox inniheldur:
– Vefju
– Skyr
– Ávöxt
– Múslístykki
– Lítið súkkulaðistykki
– Vatnsflösku

Verð: 2.500 kr.

Endilega sendið okkur póst á adventure@midgard.is ef þið eruð með séróskir eða ofnæmi. Nestisboxið er tilvalið fyrir grænmetisætur.

Gistimöguleikar

Viltu gera meira úr deginum og gista á Midgard Base Camp? Á meðan á Covid faraldrinum stendur bjóðum við upp á „Airbnb“ gistingu. Í boði er uppábúið rúm í kojuherbergi (4 eða 6 manna) á 4.000 kr. og tveggja manna herbergi með sérbaði á 13.900 kr.  Aðgangur að sauna og yndislegum heitum potti með frábæru útsýni yfir Eyjafjallajökul er innifalinn í gistingu. Gestir hafa einnig fullan aðgang að gestaeldhúsi og stóru sameiginlegu rými. Vinsamlega sendið póst á sleep@midgard.is til að bóka gistingu. Viltu vita meira um Midgard Base Camp? Smelltu hér til að skoða heimasíðuna og horfðu einnig á myndbandið neðst á þessari síðu.

 

Er hægt að bóka fyrir fjölskyldumeðlim eða vin?

Ykkur er velkomið að bóka einnig fyrir vin eða fjölskyldumeðlim. Vinsamlega sendið póst á adventure@midgard.is til að ganga frá bókun.