Gefðu einstaka ævintýraupplifun í gjöf!
Við getum útbúið sérsniðið ævintýri fyrir þig til að gefa í gjöf. Hafðu samband og við sendum á þig tillögu. Við gætum til dæmis stungið upp á Þórsmerkurævintýri á breyttum jeppum, dagsferð inn á Fjallabak, ísgöngu eða ísklifur, ævintýraferð fyrir fjölskyldur með ung börn, hjólaferð eða hellakvöldverð.
Við erum með jeppana, hjólin, hjólakerruna og anan búnað. Við erum með frábæra staðkunnuga leiðsögumenn, þekkjum svæðið út og inn og eigum auðvelt með að varpa fram skemmtilegum hugmyndum að ferðalagi á svæðinu.
Munið að það kostar ekkert að hafa samband. Okkur þætti það bara verulega ánægjulegt.
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ SENDUM Á ÞIG FREKARI UPPLÝSINGAR
Þú getur notað fyrirspurnarformið hér á síðunni, sent okkur póst á adventure@midgard.is eða hringt í síma 578 3370.
RÉTT Í LOKIN…TVÆR SPURNINGAR
VANTAR ÞIG GISTINGU?
Midgard Base Camp á Hvolsvelli býður upp á bæði hótel og hostel gistingu. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldur (börn elska að gista hjá okkur), vinahópinn og pör. Yndislegur heitur pottur með mögnuðu útsýni, sauna, stórt sameiginlegt rými, bar, veitingastaður, gestaeldhús, aðstaða til að þurrka tjöld og búnað, þvottavél, þurrkari, næg bílastæði og margt fleira.
VISSIR ÞÚ AF MIDGARD RESTAURANT?
Veitingastaðurinn okkar býður upp á “FEEL GOOD FOOD” sem bæði nærir og kætir. Við leggjum jafnframt áherslu á að nota hráefni úr heimabyggð og reynum að gera allt frá grunni. Við bjóðum upp á breitt úrval rétta fyrir kjöt-, fisk- og grænmetisætur og auðvitað líka grænkera.
>> Smelltu hér til að lesa meira!