FROM 69.300 ISK
One tour per person
Nýtt!
Júní – Okt.
Season
1 dagur/1 nótt
Duration

Ganga um Fjallabak syðra með Midgard Adventure

Komdu með í dagsgöngu um Fjallabak syðra. Fjallabak er eitt af náttúrundrum Íslands en syðri hluti þess er minna þekktari en býr ekki yfir síðri töfrum. Nákvæmt leiðarval verður sveigjanlegt og ræðst eftir aðstæðum en við munum velja skemmtilegustu gönguna hverju sinni. Mögulegar leiðir liggja um Rauðabotn, Strút, nágrenni Mælifells, Hattfell, Hólmsárlón, Hólaskjól og Álftavatnakrók.

Hópurinn mætir á Midgard Base Camp um morguninn. Eftir stuttan undirbúningsfund er hópnum skutlað inn á Fjallabak syðra. Þetta verður skemmtilegur göngudagur með sirca 8-12km langri göngu. Eftir göngu mun hópurinn gæða sér á grilluðum hamborgara og kældum bjór eða gosi. Eftir mat er ekið að Midgard Base Camp þar sem fólk getur mýkt stirða vöðva í heitum potti og gufubaði. Þegar úthaldið er búið er lagst til hvílu í sérherbergi.

 

Hvað er innifalið?

  • Gönguleiðsögn með reyndum leiðsögumönnum Midgard
  • Skutl frá Hvolsvelli inn á Fjallabak
  • Hamborgari og bjór/gos við lok göngu
  • Skutl frá Fjallabaki að Midgard Base Camp
  • Gisting í eina nótt í sérherbergi á Midgard Base Camp
  • Morgunverður
  • Undirbúningsfundur
  • Aðgangur að heitum potti og sauna á Midgard Base Camp

 

Verð: 69.300 kr. á mann*

*verð miðar við tvo í herbergi

Viltu frekar gista í koju? Smelltu hér.

 

Dagsetningar 2024

Hægt er að sjá allar dagsetningar í bókunarvélinni. Vinsamlega athugið að lágmarksþátttaka í ferð er 8 manns.

 

Fyrir hverja er þessi ferð?

Þessi ganga er fyrir alla þá sem langar að kynnast Fjallabaki syðra. Margir þekkja Fjallabak niðra með Landmannalaugum, Grænahrygg, Rauðu Skál og Ljóta polli svo fátt eitt sé nefnt en færri þekkja ótroðnari slóðir Fjallabaks Syðra sem býr yfir ekki síðri töfrum. Við munum sjá til þess að gönguhraðinn henti öllum, byrjendum og þeim sem eru vanir.

 

Frekari upplýsingar um gönguna:

Lengd göngu: 8–12 km. Hækkun um: 400m. Tímalengd göngu: fer eftir hópnum en almennt um 6-8 tímar.

 

Gistingin:

Í boði er gisting í sérherbergi eða í uppábúinni koju.

Viltu frekar kojugistingu? Smelltu hér!

>> Kynntu þér Midgard Base Camp hér

 

Nestispakki

Í bókunarferlinu getur þú bætt við nestispakka til að hafa með í gönguna.

BÓKAÐU Í DAG OG UPPLIFÐU FJALLABAK SYÐRA MEÐ MIDGARD!

 

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningu? Hafðu samband við okkur hér eða sendu okkur póst á adventure@midgard.is. Þú getur einnig hringt í okkur í síma 578 3370.

Smelltu hér til að lesa afbókunar- og endurgreiðsluskilmála Midgard.

 

RÉTT Í LOKIN…TVÆR SPURNINGAR

VILTU BÓKA FLEIRI NÆTUR Á MIDGARD BASE CAMP?

Midgard Base Camp á Hvolsvelli býður upp á bæði hótel og hostel gistingu. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldur (börn elska að gista hjá okkur), vinahópinn og pör. Yndislegur heitur pottur með mögnuðu útsýni, sauna, stórt sameiginlegt rými, bar, veitingastaður, gestaeldhús, aðstaða til að þurrka tjöld og búnað, þvottavél, þurrkari, næg bílastæði og margt fleira.

>> Kynntu þér málið hér!

 

VISSIR ÞÚ AF MIDGARD RESTAURANT?

Veitingastaðurinn okkar býður upp á bragðgóðan mat  sem bæði nærir og kætir. Við leggjum áherslu á að nota hráefni úr heimabyggð og reynum að gera allt frá grunni. Við bjóðum upp á rétti fyrir kjöt-, fisk- og grænmetisætur og auðvitað líka grænkera.

>> Smelltu hér til að lesa meira!

Mælifell Super Jeep Day Tour
Mælifell Super Jeep Day Tour
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Mælifell Super Jeep Day Tour
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Mælifell Super Jeep Day Tour
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Mælifell Super Jeep Day Tour
Mælifell Super Jeep Day Tour
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Fjallabak syðra með Midgard
Midgard Accommodation