FROM 64.900 ISK
One tour per person
Nýtt!
2.-3. sept 23
Season
2 dagar/ 1 nótt
Duration

Utanvegahlaupaveisla með Ragnheiði og Midgard

Hlaupum saman í ævintýra bakgarði Midgard. Leiðarvalið verður í ætt við lýsinguna hér að neðan, með smá sveigjanleika eftir veðri og aðstæðum. Það eru margir möguleikar í nágrenni við Midgard svo leiðin verður ævintýraleg.

Ferðalýsing

Laugardagurinn:

Mæting er á Midgard Base Camp á Hvolsvelli kl 10:30 þar sem morgunverðarhlaðborðið bíður ykkar. Eftir morgunmat og stuttan kynningarfund verður haldið af stað í hlaup dagsins. Þið sameinist í ykkar bíla og keyrið inn að bílastæðinu við Þríhyrning. Við hlaupum Krappann niður með Fiská og endum á malarveginum í Vallarkrók. Við hlaupum i fjölbreyttu landslagi, utan alfaraleiða, þar sem við förum kindastíga og vöðum ár. Höldum svo heim á Midgard þar sem að fólk getur mýkt stirða vöðva í heitum potti og gufubaði eða jafnvel kíkt í sund áður en snæddur er kvöldmatur á Midgard Restaurant (ekki innifalið í verði). Þegar úthaldið er búið er lagst til hvílu í uppábúinni lúxuskoju.

Sunnudagurinn:

Eftir góðan svefn og staðgóðan morgunverð er tekinn stuttur fundur fyrir daginn. Þá er hópnum skutlað inn að Skógum. Við hlaupum eina af fallegustu gönguleiðum landsins. Hlaupið er upp með Skógá, farið yfir ánna á göngubrú og haldið áfram að Baldvinsskála. Þaðan liggur leiðin að Magna og Móða, niður Bröttufönn, um Heljarkamb, yfir Morinsheiði, um hinn fræga Kattahrygg og þaðan áfram niður í Þórsmörk. Þar bíða þurr föt, grillaður hamborgari og kældur bjór eða gos. Eftir mat er ekið að Midgard Base Camp þar sem við kveðjum hvert annað og höldum heim á leið.

 

Hvað er innifalið?
  • Tveggja daga hlaupaleiðsögn
  • Skutl að Skógum
  • Sótt í Þórsmörk
  • Gisting í eina nótt í koju á Midgard Base Camp
  • Morgunverður (x2)
  • Hádegisverður (x1)
  • Kvöldverður (x1, eftir fimmvörðuhálsinn, ekki eftir stutta daginn, hvor dagurinn sem verður á undan)
  • Aðgangur að heitum potti og sauna á Midgard Base Camp

Verð: 64.900 kr. á mann

 

Dagsetning:

2.-3. september 2023

 

Leiðsögumaður:

Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir er ástríðuhlaupari sem elskar að hlaupa úti í náttúrunni og njóta umhverfisins. Hún hefur mikla reynslu af hlaupum á stígum, utanvega og á malbiki. Mikil félagsvera sem finnst fátt skemmtilegra en að hlaupa með hópi af hressum hlaupurum. Hefur hlaupið með hópa frá árinu 2018.

Ragnheiði til stuðnings verða hlaupaleiðsögumenn frá Midgard.

 

Nestispakki:

Í bókunarferlinu getur þú bætt við nestispakka fyrir Fimmvörðuhálshlaupið. Smelltu hér til að sjá hvað nestispakkinn inniheldur.
 

Búnaðarlisti:

Til að allir séu sem öruggastir á hlaupum þá eru nokkrir hlutir sem er skylda að hafa með í hlaupin.
Skyldubúnaður fyrir hlaup:

  • Regnheldur jakki
  • Buff eða annarskonar höfuðfat
  • amk 500 ml af drykkjarvökva
  • 4 gel eða álíka næring sem auðvelt er að grípa í á hlaupum eða í stoppi
  • álteppi

Við mælum með því að auk skyldubúnaðarins hafi hlauparar þessa hluti tiltæka:

  • Regnheldar buxur
  • Vettlinga
  • Flautu (eru í flestum hlaupavestum)
  • Hlaupavesti með nóg af plássi til að geyma skyldubúnaðinn.

 

Lágmarksþátttaka: 8 manns.

 

Gistingin:

Kojuherbergin eru 4-6 manna. Við reynum eftir fremsta megni að setja vinahópa saman í herbergi. Kojuherbergin eru mjög skemmtileg. Þau státa af veglegum, heimasmíðuðum kojum sem eru boltaðar í gegnum vegginn. Rúmin er uppábúin og dýnurnar, sængurnar og sængurverin eru af góðum gæðum. Kojurnar eru þannig útbúnar að hægt er að draga gardínu fyrir, þannig fæst meira næði. Hver koja er jafnframt með sér rafmagnstenglum og læstri hirslu. Klósett og sturtur eru sameiginleg.

 

BÓKAÐU Í DAG OG GERÐU SEPTEMBER AÐ FRÁBÆRUM MÁNUÐI!

 

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningu? Hafðu samband við okkur hér eða sendu okkur póst á adventure@midgard.is. Þú getur einnig hringt í okkur í síma 578 3370.

Smelltu hér til að lesa afbókunar- og endurgreiðsluskilmála Midgard.

 

RÉTT Í LOKIN…TVÆR SPURNINGAR

VILTU BÓKA FLEIRI NÆTUR Á MIDGARD BASE CAMP?

Midgard Base Camp á Hvolsvelli býður upp á bæði hótel og hostel gistingu. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldur (börn elska að gista hjá okkur), vinahópinn og pör. Yndislegur heitur pottur með mögnuðu útsýni, sauna, stórt sameiginlegt rými, bar, veitingastaður, gestaeldhús, aðstaða til að þurrka tjöld og búnað, þvottavél, þurrkari, næg bílastæði og margt fleira.

>> Kynntu þér málið hér!

 

VISSIR ÞÚ AF MIDGARD RESTAURANT?

Veitingastaðurinn okkar býður upp á bragðgóðan mat  sem bæði nærir og kætir. Við leggjum áherslu á að nota hráefni úr heimabyggð og reynum að gera allt frá grunni. Við bjóðum upp á rétti fyrir kjöt-, fisk- og grænmetisætur og auðvitað líka grænkera.

>> Smelltu hér til að lesa meira!

Fjallabak syðra með Midgard
Midgard Accommodation