FROM 55.800 ISK
One tour per person
Jun-Sept
Season
1 dagur/1 nótt
Duration

Fimmvörðuháls með Midgard Adventure

Gakktu eina af fallegustu gönguleiðum landsins með reyndum leiðsögumanni Midgard Adventure. Hópurinn mætir á Midgard Base Camp um morguninn. Eftir stuttan undirbúningsfund er hópnum skutlað að Skógafossi þar sem gangan hefst. Gengið er upp með Skógá, farið yfir ánna á göngubrú og haldið áfram að Baldvinsskála. Þaðan liggur leiðin að Magna og Móða, niður Bröttufönn, um Heljarkamb, yfir Morinsheiði, um hinn fræga Kattahrygg og þaðan áfram niður í Þórsmörk. Þar bíða þurr föt, grillaður hamborgari og kældur bjór eða gos. Eftir mat er ekið að Midgard Base Camp þar sem fólk getur mýkt stirða vöðva í heitum potti og gufubaði. Þegar úthaldið er búið er lagst til hvílu í uppábúinni koju.

Hvað er innifalið?

  • Gönguleiðsögn
  • Skutl frá Hvolsvelli á Skóga
  • Hamborgari og bjór/gos í Þórsmörk
  • Flutningur frá Þórsmörk að Midgard Base Camp
  • Gisting í eina nótt í uppábúinni koju á Midgard Base Camp
  • Morgunverður
  • Undirbúningsfundur
  • Aðgangur að heitum potti og sauna á Midgard Base Camp

 

Verð: 55.800 kr. á mann

Viltu frekar gista í tveggja manna herbergi? Smelltu hér.

 

Dagsetningar 2024

Hægt er að sjá allar dagsetningar í bókunarvélinni. Vinsamlega athugið að lágmarksþátttaka í ferð er 8 manns.

 

Fyrir hverja er þessi ferð?

Þessi ganga er fyrir alla sem vilja upplifa eina fallegustu gönguleið landsins. Við munum sjá til þess að gönguhraðinn henti öllum, byrjendum og þeim sem eru vanir.

 

Frekari upplýsingar um gönguna:

Lengd göngu: 24 km. Hækkun: 1,050m. Tímalengd göngu: fer eftir hópnum en almennt um 9-12 tímar.

 

Gistingin:

Kojuherbergin eru 4-6 manna. Við reynum eftir fremsta megni að setja vinahópa saman í herbergi. Kojuherbergin eru mjög skemmtileg. Þau státa af veglegum, heimasmíðuðum kojum sem eru boltaðar í gegnum vegginn. Rúmin er uppábúin og dýnurnar, sængurnar og sængurverin eru af góðum gæðum. Kojurnar eru þannig útbúnar að hægt er að draga gardínu fyrir, þannig fæst meira næði. Hver koja er jafnframt með sér rafmagnstenglum og læstri hirslu. Klósett og sturtur eru sameiginleg.

Viltu frekar tveggja manna herbergi með sérbaði? Smelltu hér!

>> Kynntu þér Midgard Base Camp hér

 

Nestispakki

Í bókunarferlinu getur þú bætt við nestispakka til að hafa með í gönguna.

 

BÓKAÐU Í DAG OG GAKKTU FIMMVÖRÐUHÁLSINN Í SUMAR MEÐ MIDGARD!

 

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningu? Hafðu samband við okkur hér eða sendu okkur póst á adventure@midgard.is. Þú getur einnig hringt í okkur í síma 578 3370.

Smelltu hér til að lesa afbókunar- og endurgreiðsluskilmála Midgard.

 

RÉTT Í LOKIN…TVÆR SPURNINGAR

VILTU BÓKA FLEIRI NÆTUR Á MIDGARD BASE CAMP?

Midgard Base Camp á Hvolsvelli býður upp á bæði hótel og hostel gistingu. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldur (börn elska að gista hjá okkur), vinahópinn og pör. Yndislegur heitur pottur með mögnuðu útsýni, sauna, stórt sameiginlegt rými, bar, veitingastaður, gestaeldhús, aðstaða til að þurrka tjöld og búnað, þvottavél, þurrkari, næg bílastæði og margt fleira.

>> Kynntu þér málið hér!

 

VISSIR ÞÚ AF MIDGARD RESTAURANT?

Veitingastaðurinn okkar býður upp á bragðgóðan mat  sem bæði nærir og kætir. Við leggjum áherslu á að nota hráefni úr heimabyggð og reynum að gera allt frá grunni. Við bjóðum upp á rétti fyrir kjöt-, fisk- og grænmetisætur og auðvitað líka grænkera.

>> Smelltu hér til að lesa meira!