Grænihryggur með Midgard Adventure
Dagsganga um náttúruundur Torfajökuls og Landmannalauga. Gengið er í hlíðum Skalla, um Uppgönguhrygg, í Hattver, Jökulgil og að Grænahrygg. Gist er á Midgard Base Camp í eina nótt.
Hvað er innifalið?
- Gönguleiðsögn með reyndum leiðsögumönnum Midgard
- Gisting í eina nótt í uppábúinni koju á Midgard Base Camp
- Ferð frá Midgard að Landmannalaugum og til baka
- Hamborgaragrill eftir gönguna
- Aðstöðugjald í Landmannalaugum
- Undirbúningsfundur
- Aðgangur að heitum potti og sauna á Midgard Base Camp
- Morgunverður
Verð : 55.800 kr. á mann
Viltu frekar gista í tveggja manna herbergi? Smelltu hér.
Dagsetningar 2024
Hægt er að sjá allar dagsetningar í bókunarvélinni. Vinsamlega athugið að lágmarksþátttaka í ferð er 8 manns.
Ferðalýsing:
Dagur 1.
Hópurinn hittist á Midgard Base Camp um morguninn. Eftir stuttan undirbúningsfund er lagt af stað frá Midgard kl. 07:00 og akstur hefst upp í Landmannalaugar, ca. 2 tímar.
09:30 Gangan hefst frá Landmannalaugum.
Ca. 18:00 Koma til baka í Landmannalaugar
Grill í Landmannalaugum og baða sig í náttúrulauginni.
Akstur frá Landmannalaugum að Midgard Base Camp þar sem við gistum um kvöldið.
Dagur 2.
Morgunmatur á Midgard.
Við mælum með að fólk njóti svæðisins í kringum Midgard þennan dag. Gengið, skokkað eða hjólað. Leiðsögumenn Midgard verða við um morguninn og geta leiðbeint fólki í hin ýmsu ævintýri.
Ferðaplanið gefur okkur þann sveigjanleika að ef veður er vont á laugardeginum þá væri hægt að ganga að Grænahrygg á sunnudeginum. Það yrði þá alltaf ákveðið fyrirfram og allir upplýstir um það.
Fyrir hverja er þessi ferð?
Gönguleiðin er tæknilega einföld, fyrir utan vað á Jökulkvíslinni.
Leiðin er ca. 20 km löng.
Við mælum með vaðskóm og göngustöfum á þessari göngu. Frekari útbúnaðarlisti verður sendur á þátttakendur.
Gistingin:
Kojuherbergin eru 4-6 manna. Við reynum eftir fremsta megni að setja vinahópa saman í herbergi. Kojuherbergin eru mjög skemmtileg. Þau státa af veglegum, heimasmíðuðum kojum sem eru boltaðar í gegnum vegginn. Rúmin er uppábúin og dýnurnar, sængurnar og sængurverin eru af góðum gæðum. Kojurnar eru þannig útbúnar að hægt er að draga gardínu fyrir, þannig fæst meira næði. Hver koja er jafnframt með sér rafmagnstenglum og læstri hirslu. Klósett og sturtur eru sameiginleg.
Viltu frekar tveggja manna herbergi með sérbaði? Smelltu hér!
>> Kynntu þér Midgard Base Camp hér
Nestispakki
Í bókunarferlinu getur þú bætt við nestispakka til að hafa með í gönguna.
BÓKAÐU Í DAG OG GAKKTU AÐ GRÆNAHRYGG MEÐ MIDGARD!
HAFÐU SAMBAND
Ertu með spurningu? Hafðu samband við okkur hér eða sendu okkur póst á adventure@midgard.is. Þú getur einnig hringt í okkur í síma 578 3370.
Smelltu hér til að lesa afbókunar- og endurgreiðsluskilmála Midgard.
RÉTT Í LOKIN…TVÆR SPURNINGAR
VILTU VITA MEIRA UM MIDGARD BASE CAMP?
Midgard Base Camp á Hvolsvelli býður upp á bæði hótel og hostel gistingu. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldur (börn elska að gista hjá okkur), vinahópinn og pör. Yndislegur heitur pottur með mögnuðu útsýni, sauna, stórt sameiginlegt rými, bar, veitingastaður, gestaeldhús, aðstaða til að þurrka tjöld og búnað, þvottavél, þurrkari, næg bílastæði og margt fleira.
>> Kynntu þér Midgard Base Camp betur hér!
VISSIR ÞÚ AF MIDGARD RESTAURANT?
Veitingastaðurinn okkar býður upp á bragðgóðan mat sem bæði nærir og kætir. Við leggjum jafnframt áherslu á að nota hráefni úr heimabyggð og reynum að gera allt frá grunni. Við bjóðum upp á rétti fyrir kjöt-, fisk- og grænmetisætur og auðvitað líka grænkera.
>> Smelltu hér til að lesa meira!